Hvað getum við lært af Mayo Clinic?

mayo clinicÍ bókinni Management Lessons from Mayo Clinic er fjallað um hvernig eitt fremsta þjónustufyrirtæki heimsins, Mayo Clinic er stjórnað. Í bókinni er fjallað ítarlega um stjórnun Mayo Clinic þar sem hefur tekist að skapa öfluga menningu, sem fullnægir væntingum viðskiptavina og skapar hollustu bæði meðal starfsmanna og viðskiptavina. The Management Lessons from Mayo Clinic er talin ein af bestu stjórnunarbókunum sem kom út á síðasta ári.

Efnahagslífið bráðnar

meltdownÍ bókinni Meltdown gagnrýnir Thomas E. Woods Jr. aðgerðir stjórnvalda við að bjarga efnahagslífinu með svokölluðum björgunaraðgerðum sínum. Hann segir upphaf vandamálanna liggja hjá seðlabönkum og stjórnvöldum yfir höfuð. Í bókinni eru áleitnum spurningum velt upp, m.a. um peninga og tilgang þeirra. Einnig vara bókin Meltdown við hættunni sem fylgir því að bjarga illa reknum fyrirtækjum með miklar skuldir. Í lok bókarinnar kemur höfundur með rökstuddar en mjög róttækar lausnir á núverandi vandamálum.

Sjálfstraustið metið

EgonomicsHroki, sjálfselska, þrjóska og óöryggi eru lýsingarorð sem fólk tengir við sjálfsmat eða „egóið“. Í bókinni Egonomics fjalla David Marcum og Steven Smith um rannsóknir sínar á hvaða áhrif sjálfsálit fólks hefur á frammistöðu þeirra, þ.e. hvernig gott sjálfsálit getur haft góð áhrif á árangur og að jöfnu hefur lélegt sjálfsmat slæm áhrif á árangur. Áætlað er að sjálfstraust kosti fyrirtæki andvirði margra milljarða á hverju ári en til að ná hámarksárangri þarf samspil góðs sjálfstrausts og auðmýkt.

Soros og framtíð fjármálamarkaða

sorosGeorge Soros er einn af fremstu fjárfestum og fjármálaspekingum okkar tíma en hann hefur einnig verið ötull við að gagnrýna núverandi fjármálakerfi og stefnur yfirvalda í efnahagsmálum. Soros eftir Robert Slater er endurbætt útgáfa af ævisögu Soros sem kom út árið 1996 en sú bók var skrifuð án upplýsinga frá Soros sjálfum en þessi bók byggir á viðtölum við nána samstarfsmenn Soros og viðtali við hann sjálfan. Bæði er fjallað um fjárfestinn Soros, hvert mat hans er á framtíð lána- og fjármálamarkaða og einnig er dreginn upp mynd af áhrifamanninum Soros en hann er áhrifmikill á vettvangi heimsmálanna.


Blóðug barátta um yfirráð

barbarians at the gate - dvdBarbarians at the Gate er hörkuspennandi mynd sem gerist á níunda áratug síðustu aldar. Allir voru að gera það gott en það nægði ekki forstjóra Nabisco sem vildi græða formúgu með því að yfirtaka fyrirtækið sjálfur. Upphefst mikil barátta um fyrirtækið sem fer langt út fyrir þau mörk sem flestir telja að geti átt sér stað í viðskiptalífinu og er titill myndarinnar lýsandi fyrir þau átök, eða villimenn við hliðið.

Barbarians at the Gate fæst á dvd disk í Skuld bókabúð ásamt öðrum spennandi dvd myndum á borð við Wall Street, sem inniheldur fræg orð Gordon Gekko: „græðgi er góð“, Enron og Boiler Room.


Eva Joly segir frá

justice under siegeJustice Under Siege eftir Evu Joly fjallar um ótrúlega rannsókn hennar á einu mesta fjármálamisferli í Frakklandi sem teygði anga sín víða um heim. Hér lýsir hún hvernig var reynt að koma í veg fyrir rannsókn hennar með ofbeldi og hótunum. Hér er á ferð saga sterkrar konu sem er knúin áfram af eigin sannfæringu og lætur ekkert aftra sér frá því að komast að sannleikanum. Eva Joly hefur verið ráðinn sérstakur ráðgjafi Íslendinga þannig að við megum búast við að sjá meira frá þessari athafnamiklu konu.

Stattu af þér erfiða tíma

how to prosper in hard timesHow to Prosper in Hard Times er samantekt á mikilvægustu skilaboðum fremstu rithöfunda á sviðum hvatningabóka. How to Prosper in Hard Times inniheldur sannleiksmola sem gott er að rifja upp reglulega til að tileinka sér hugsunarhátt sigurvegara. Ýmis skilaboð felast í textanum, t.d. á borð að árangur sé byggður á vinnu og allir gera einhver mistök, allir séu frábærir og eiga að gera það sem þeir þrá. Allir geta allt þrátt fyrir að þeir séu eingöngu með viljann að vopni. Ef þú sigrast á sjálfum þér sigrarðu lífið og það sem hindrar flesta eru þeirra eigin hugsunarháttur sem mikilvægt er að breyta ef hann kemur í veg fyrir árangur.

Uppruni og saga evrunnar

birth of the euroÍ The Birth of the Euro eftir Otmar Essing er fjallað um upphaf og sögu evrunnar, mikilvægi hennar og spáð fyrir um framtíð hennar. Í daga nota 318 milljónir evruna í 15 löndum og hefur evrunni tekist að festa sig í sessi sem einn af áhrifamestu gjaldmiðlunum í alþjóðlegum viðskiptum. Spurningum á borð við hvað skýri vinsældir evrunnar og hver framtíð hennar verður er svarað í bókinni.

Umhverfismálin í forgang til að spara

stirring it upGary Hirshberg, höfundur Stirring It Up er forstjóri í umhverfisvænu framleiðslufyrirtæki. Hann lýsir hér hvernig fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum geta sparað með því að innleiða umhverfisvæna staðla og hegðun eftir að hafa sannreynt það á sínu eigin fyrirtæki. Með „grænum“ fyrirtækjum sparast peningur til lengri tíma, til dæmis með því að draga úr magni úrgangs, pökkunar, breyta úrgangi í orku og fá viðskiptavini og birgja í samstarf við sig til að bæta umhverfismál og spara með því peninga.

Fjármálakóngarnir

lords of financeÞað er almennt talið að Kreppan árið 1929 hafi orðið vegna raða atburða sem hvorki menn né stjórnvöld gætu hafa afstýrt. Í Lords of Finance fjallar Liaquat Ahamed um að ákvarðarnir sem voru teknar af fáum seðlabankastjórum voru aðalástæðan efnahagshrunsins sem markaði sögu allrar 20. aldarinnar og greiddi götu seinni heimstyrjaldarinnar. Í Lords of Finance er dregin upp mynd af fjórum seðlabankastjórum sem með gjörðum sínum, bæði í starfi og einkalífi breyttu sögunni en þeir stýrðu peningamálum stærstu hagkerfa heims, þ.e. í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi og New York.  

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skuld bókabúð

Höfundur

Skuld bókabúð
Skuld bókabúð
Skuld bókabúð er fyrsta verslunin sem sérhæfir sig í sölu bóka tengdum hinum ýmsu hliðum viðskiptalífsins. Allir titlarnir sem hér er fjallað um fást í Skuld bókabúð á Laugavegi 51. Netfangið er skuld@skuld.is  Símanúmerið er: 552 0645. Heimasíða Skuldar er www.skuld.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Rússland Pútíns
  • managing energy risk
  • Hrunið
  • how the mighty fall
  • new gold standard

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 412

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband