6.10.2008 | 12:16
Heit, flöt og troðin
Nýjasta bók metsöluhöfundarins og blaðamannsins Thomas L. Friedman, Hot, Flat and Crowded er ögrandi og fersk nálgun á stöðu heimsmála í dag og hvað býður okkar. Í bókinni fjallar hann um stærsta vandamálið sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir en það er að uppfylla sívaxandi orkuþörf á umhverfisvænan hátt. Samkvæmt spám Friedman þarf að leggja allt kapp á að finna lausnir fyrir komandi ár og áratugi, ekki sé eftir neinu að bíða. Thomas L. Friedman hefur m.a. skrifað bækurnar The World is Flat og The Lexus and the Olive Tree, sem hafa selst í milljónum eintaka. Bækur Thomas L. Friedman eru vel ígrunduð umfjöllun um stöðu heimsmála á aðgengilegu máli og hefur Friedman reynst mjög sannspár á þróun heimsmála í skrifum sínum.
Þess má geta að Hot, Flat and Crowded er fyrsta bókin í bókaklúbbi Skuldar en skráning í klúbbinn fer fram á skuld@skuld.is.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2008 | 13:36
Skemmtun með tilgang
Hluti af starfi flestra innan fyrirtækja er að sækja ýmsar atburði og uppákomur á vegum fyrirtækjanna sjálfra eða tengdra aðila og mjög misjafnt er hversu miklum árangri svona atburðir skila. Í The Executives´s Guide to Corporate Events & Business Entertaining er sagt frá því hvernig er hægt að fá sem mest út úr þessum atburðum þar sem bæði er verið að sóa dýrmætum tíma og peningum ef svona tækifæri eru látin fara til spillis. Með réttri framkomu geturðu náð góðum árangri í mikilvægum málefnum á borð við að koma fyrirtæki þínu á framfæri, stofnað til nýrra viðskiptasambanda og aukið hollustu viðskiptavina þinna og hvernig á að mynda nánari tengsl við núverandi viðskiptavini. Góð lesning fyrir þá sem vilja fá sem mest út úr tíma sínum og einnig þá sem vilja réttlæta áframhaldandi partý fyrir samstarfsfélögum sínum.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2008 | 14:07
Dómsdagsspár
Financial Armagedddon fjallar um fjármálakrísuna sem fer ekki framhjá neinum þessa dagana en Michael J. Panzner var einn af þeim fáu sem spáði fyrir um krísuna í samnefndri bók í mars 2007 og er hér um að ræða nýja uppfærða útgáfu þeirrar bókar. Hér útskýrir hann aðdragandann og af hverju staðan sé eins slæm og raun ber vitni. Michael J. Panzner vann í áratugi í fjármálageiranum og hefur unnið fyrr fyrirtæki á borð við HSBC, sjóði George Soros, ABN Amro og J.P. Morgan Chase. Þeir sem vilja vita hvað gerist næsta þurfa að lesa bókina.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2008 | 12:25
Úlfurinn á Wall Street
Á daginn græddi hann mörg þúsund Bandaríkjadali á mínútu, á kvöldin eyddi hann þeim eins hratt og hann gat í skemmtanir. Í The Wolf of Wall Street segir Jordan Belfort frá eigin frama og falli en aðeins 26 ára varð hann milljónamæringur af viðskiptum með hlutabréf. 10 árum síðar hafði hann verið kærður fyrir fjársvik. Mjög góð, spennandi og hreinskilin frásögn einnar af skærustu stjörnum Bandarísks viðskiptalífs um lífernið, óheiðarlegu viðskiptin og fallið í kjölfarið.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2008 | 16:12
Sigurvegarinn tekur allt
The Winner Take All fjallar um hvernig samkeppnishæfni þjóða hefur áhrif á hver staða þeirra verður til framtíðar og þar með örlög þeirra á alþjóðavísu. Winner Take All segir okkur hvað þjóðir þurfi að hafa til að ná samkeppnisforskoti og hvernig þurfi að endurvekja eða skapa hugsunarhátt meðal þjóða til að standa sig í harðri samkeppni við aðrar þjóðir. T.d. er almennt talið að Bandaríkin hafi tapað framleiðslu til Asíu vegna ódýrs vinnuafls en samkvæmt Richard J. Elkus, höfundi Winner Take All, eru þau að missa vægi á alþjóðavísu til Asíu því ríkin þar eru að spila annan leik með allt öðrum reglum. Þessi bók er nauðsynleg lesning fyrir þá sem vinna að stefnumótun á alþjóðavísu hvort sem er fyrir alþjóðleg fyrirtæki, hið opinbera eða alþjóðastofnanir.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2008 | 11:24
Gefið og þér munið þiggja
Flestum finnst mikil þversögn felast í þeim orðum að lykillinn að árangri felist í því að gefa en á móti kemur að það gengur ekki öllum vel. The GO-Giver fjallar um Joe sem þráir ekkert heitara en að ná árangri í lífinu en alveg sama hversu mikið hann leggur á sig hann virðist alltaf fjarlægjast markmiðum sínum. Joe þiggur ráðleggingar hjá manni sem kynnir hann fyrir fólki sem hefur náð markmiðum sínum en ekki með því að þiggja heldur með því að gefa og fylgja eftir fimm lögmálum sem Go-Giver fjallar um. Með því að auðga líf annarra hafa þeir náð markmiðum sínum. Gefið og þér munið þiggja.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2008 | 13:02
Af hverju kaupir fólk 20 dollara á 207 dollara?
Sway fjallar um hvað býr að baki óskynsamlegri heðgun, t.d. hvernig fær háskólaprófessor nemendur sína í MBA námi alltaf til að kaupa 20 dollara seðil af sér á miklu hærra verði en 20 dollara og hæsta verðið sem 20 dollararnir hafa farið á eru 207 dollarar. Fólk leggur meira á sig til að koma í veg fyrir tap en að hagnast og oft gengur það mjög langt til að koma í veg fyrir lítið tap. Utanaðkomandi þættir geta leitt til þess að skynsamt fólk tekur mjög óskynsamlegar ákvarðanir.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2008 | 14:27
Fjárfestu eins og Buffett og Soros
Warren Buffett og George Soros byrjuðu með báðar hendur tómar en hafa báðir grætt gríðarlega á fjárfestingum og eru í dag meðal þeirra ríkustu í heimi. Fjárfestingastefnur þeirra virðast við fyrstu sýn mjög ólíkar svo að hvað geta þeir átt sameiginlegt? Þeirri spurningu svarar Mark Tier í bókinni Winning Investment Habits of Warren Buffett & George Soros þar sem hann bendir á hvernig þeir hegði sér eins og hvað sé líkt með fjárfestingastefnum þeirra sem þeir nýta út í ystu æsar. Buffett og Soros eiga það einnig sameiginlegt að óhefðbundnar leiðir sem vekja ávallt athygli og eru þvert á það sem almennt er talið skynsamt.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2008 | 13:21
Breyttu því hvernig þú hugsar

Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2008 | 11:52
Taktu réttari ákvarðanir á auðveldan hátt
Metsölubókin Blink fjallar á mjög skemmtilegan og nýstárlegan hátt hvernig við eigum að einfalda ákvarðanatöku og á sama tíma taka réttari ákvarðanir. Blink fjallar um þá mikilvægu þætti sem hafa áhrif á ákvarðanatöku okkar og byggir á niðurstöðum margra ólíkra tilrauna. Niðurstöður Malcolm Gladwell, höfundar Blink, eru að þeim sem tekst útiloka ytri þætti sem hafa ekki áhrif á upplýsingarnar sem liggja fyrir, taka oftast betri ákvarðanir en þeir sem taka ákvarðanir eftir að hafa vegið og metið alla mögulega þætti. Malcolm Gladwell er einnig höfundur metsölubókarinnar The Tipping Point.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Skuld bókabúð
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar