Náðu forskoti með því að starfa erlendis

Get ahead by going abroadHvernig eiga konur að verða eftirsóknarverðari starfskraftur? Svarið er einfalt, með því að öðlast reynslu á alþjóðlegum vinnumarkaði. Í Get Ahead by Getting Abroad lærirðu aðferðir við að fá störf erlendis, ná árangri í því starfi og að njóta lífsins á nýjum slóðum.  Alþjóðleg reynsla skiptir sífellt meira máli þar sem landamæri skipta litlu máli í starfsemi fyrirtækja.


Njóttu lífsins meira með því að eyða minna

ultimate cheapskate´sPraktískur og skemmtilegur leiðarvísir um það hvernig á njóta lífsins meira með því að eyða minna. Veraldleg gæði gerðu þig svalan einu sinni en það er svo 2007. Í Ultimate Cheapskate´s Road Map to True Riches eru leiðbeiningar um hvernig á að kaupa minna og vera laus við áhyggjur af persónulegum fjármálum og á sama tíma að hafa betri áhrif á aðra í kringum þig og vera umhverfisvænni. The Ultimate Cheapskate´s Road Map to True Riches segir frá aðferðunum og lögmálunum sem gera ódýrt svalt.

Hvernig á að vera happasæll á komandi árum?

how to prosperEflaust eru margir sem velta fyrir sér þeirri spurningu hvernig eigi að vera happasæll á komandi árum og í How to Prosper During the Coming Bad Years in the 21st Century svarar Howard J. Ruff þeirri spurningu. Ruff heldur því fram að þeir þættir sem leiddu til „stagflation“ eða samdrætti samhliða verðbólgu í kringum 1980 séu nú til staðar. Bókin kom út fyrr á árinu og er í raun endurbætt útgáfa af bókinni How to Prosper During the Coming Bad Years sem var gefin út árið 1978. Þá mælti Ruff með fjárfestingum í gulli og silfri og einnig nú og sýnir hann hér frammá hversu árangursríkar ráðleggingar hans voru á sínum tíma.

Komdu þér í gott form, fjárhagslega

total money makeoverThe Total Money Makeover býður skotheldar lausnir fyrir einstaklinga við að losna undan skuldafargi og þeim áhyggjum og stressi sem því fylgir. Í Total Money Makeover útskýrir Dave Ramsey hvernig fjárhagslegri heilsu getur verið náð á mjög einfaldan og aðgengilegan hátt með líkingamáli úr líkamsræktinni. Margir eru vanir því að vinna eftir fyrirfram ákveðnum kerfum vinna að koma sér í gott líkamlegt form en hér kynnir Dave Ramsey kerfi til að ná góðu formi fjárhagslega.  

Jákvæð hugsun sigrar allt

power of positive thinkingSjaldan er góð vísa of oft kveðin eins og sannast með boðskap bókarinnar, The Power of Positive Thinking sem hefur selst í yfir fimm milljónum eintaka. Lærðu að hugsa jákvætt og  horfa á björtu hliðarnar því þá leysist úr læðingi orka sem kemur þér áfram á þann stað sem þú vilt vera í lífinu. Með réttu hugarfari geturðu betrumbætt eða breytt aðstæðunum sem þú ert í núna og haft stjórn á umhverfinu í stað þess að stjórnast af því.  

Úr öskunni

out of the ashesFæstir stjórnendur eru vanir því að þurfa að endurskipuleggja rekstur fyrirtækja algjörlega frá grunni en Out of the Ashes er leiðarvísir um hvernig eigi að byggja upp fyrirtæki sem hafa farið í gjaldþrot eða nánast orðið gjaldþrota.  Í Out of the Ashes er fylgst með stjórnendum SN Brussels Airlines sem reistu félagið úr öskunni af öðru flugfélagi. Out of the Ashes lýsir árangursríkum viðsnúningi í rekstri SN Brussels Airlines sem skilaði hagnaði strax á öðru rekstrarári en félagið byrjaði með mjög takmarkað eigið fé. Farið er í gegnum stefnumótunina og framkvæmdina sem þarf til að snúa fyrirtækjum á réttar brautir og einnig er útskýrt hvernig á að halda áfram á réttu brautinni í stað þess vera aðeins að lengja líftíma fyrirtækisins til skammri tíma.


Hamfara kapítalismi

shock doctrineNaomi Klein, blaðamaður og höfundur Shock Doctrine, hefur kynnt til sögunnar hugtakið „hamfara kapítalismi.“ Hvort sem hún var að skrifa um Írak, Sri Lanka eftir Tsunami eða New Orleans eftir Katrina, varð hún alltaf vitni að því að af fólk sem var að jafna sig eftir mikil áföll fengu enn eitt áfallið en það var í efnahagslegt áfall þar sem það missti heimili sín og landareignir til stórfyrirtækja. Shock Doctrine segir frá útbreiddustu hugmyndafræði okkar tíma þar sem frjálsir markaðir ráða ferðinni og hvernig ofbeldi hefur fengið fram að ganga undir merkjum kapítalisma allt frá Suður Ameríku og Austur Evrópu til Suður Afríku, Rússlands og Írak.

Nýttu styrkleika þína

Strengths finderGerirðu það sem þú gerir best á hverjum degi? Flestir geta ekki svarað framangreindri spurningum með já og eru sífellt að hugsa til skamms tíma í stað þess að hugsa um að hámarka styrkleika sína til lengri tíma. Árið 2001 var gefin út af Gallup bókin „Discover Your Strengths“ sem hjálpaði milljónum manna að finna styrkleika sína. StrenghtsFinder 2.0 hjálpar þér að finna styrkleika þína og breyta viðhorfi þínu til sjálfs þíns og umhverfis til frambúðar.

Hvernig komumst við hjá kreppunni?

 Crash Proof

Við stöndum frammi fyrir alþjóðlegri kreppu í dag og í Crash Proof er farið yfir hvaða áhrif það hefur og hvernig fjárfestar geti varið sjálfa sig fyrir áföllum. Crash Proof er vel skrifuð og fróðleg aðvörn um komandi tíma með hærri sköttum, rýrnun á ellilífeyrissparnaði, tveggja stafa verðbólgu og jafnvel hruni miðstéttar eins og við þekkjum hana í dag. Crash Proof bendir einnig á hvernig hægt er að verja sig fyrir erfiðleikunum sem eru framundan næstu árin.


Krísu snúið í tækifæri

only the paranoid surviveÍ Only the Paranoid Survive segir fyrrverandi forstjóri Intel, Andy Grove, frá því hvaða hugmyndafræði og stefnumótun hann notaði þegar stýra þurfti Intel í gegnum þær krísur sem Intel stóð frammi fyrir undir hans stjórn.  Í bókinni segir Andy Grove frá því hvernig hann náði að halda einbeitingunni þegar allt fór á versta veg og fyrirtækið varð að bregðast við nýjum aðstæðum nánast á einni nóttu. Ef vel er haldið á spöðunum er hægt að vinna markaðshlutdeild og koma fram á sjónarsviðið mun sterkari en áður á umrótstímum.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skuld bókabúð

Höfundur

Skuld bókabúð
Skuld bókabúð
Skuld bókabúð er fyrsta verslunin sem sérhæfir sig í sölu bóka tengdum hinum ýmsu hliðum viðskiptalífsins. Allir titlarnir sem hér er fjallað um fást í Skuld bókabúð á Laugavegi 51. Netfangið er skuld@skuld.is  Símanúmerið er: 552 0645. Heimasíða Skuldar er www.skuld.is
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • Rússland Pútíns
  • managing energy risk
  • Hrunið
  • how the mighty fall
  • new gold standard

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband