Færsluflokkur: Bækur
31.8.2008 | 13:32
10 mistök sem flestir gera í viðskiptum

Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2008 | 11:49
Láttu ráðleggingar þínar heyrast

Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2008 | 12:22
Engin þjónusta er besta þjónustan

Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2008 | 12:46
Kreppan frá A til Ö
Charles Morris, höfundur The Trillion Dollar Meltdown, er ekki að fegra hlutina og í þeirri bók dregur hann vægast sagt upp dökka mynd af stöðu efnahagsmála í dag. Í bókinni er farið yfir sögu efnahagsmála í Bandaríkjunum ásamt því að útskýra ítarlega yfirstandandi lánsfjárkreppu á fjármálamörkuðum.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2008 | 08:37
Haldið í hæfileikaríkar konur
Á næstu áratugum er talið að skortur verði á hæfileikaríkum starfsmönnum en fyrirtæki geta spornað við þessari þróun með því að halda í fjölda kvenna sem hellast úr framalestinni. Off Ramps & On Ramps lýsir hvernig framúrskarandi fyrirtækjum á alþjóðavísu hefur tekist að halda í hæfustu kvenstarfsmenn sína og segir hvað virkar og hvers vegna. Off Ramps & On Ramps lýsir einnig til hvaða aðgerða,fyrirtæki með skýra framtíðarsýn, þurfi að grípa til að koma í veg fyrir afföll kvenna og til að viðhalda aðgengi fyrirtækjanna að hæfileikaríkum starfskröfum til langs tíma.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2008 | 12:29
Látið hugmynd verða að veruleika
The Art of the Start fer í gegnum fyrstu og mikilvægustu skrefin þegar nýrri vöru, þjónustu eða nýju fyrirtæki er ýtt úr vör. Á bókin við hvort sem ætlunin er að koma á fót næsta Microsoft eða góðgerðarstofnun sem á að breyta heiminum. The Art of Start leiðbeinir stjórnendum að leysa úr læðingi frumkvöðlakraftinn í rótgrónum fyrirtækjum og að hlúa að og viðhalda sköpunargleði, sem er nauðsynleg hverju fyrirtæki sem ætlar að skara framúr. The Art of the Start kennir einnig hvernig á að velja vörumerki, ráða fólk, ná samböndum, ná til viðskiptavina og skapa áhuga á því nýja. Ef þú hefur hugmyndina er The Art of the Start bókin sem gerir hugmyndina að veruleika.
Bækur | Breytt 25.8.2008 kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2008 | 14:10
Lesið í líkamstjáningu og þinni eigin stjórnað
The Secret Language of Business sviptir hulunni af leyndarmálunum á bakvið líkamstjáningu og samskipti án orða. Árangursríkir einstaklingar verða að hafa meira en bara góða samskiptahæfileika, þeir verða líka að geta lesið skilaboðin sem aðrir senda án orða. Í bókinni lærir þú að stjórna eigin líkamstjáningu og nýta hana til að að koma þínu á framfæri, lesa í líkamstjáningu annarra og stjórna fólki með nýjum aðferðum. Óháð starfsvettvangi er The Secret Language of Business góður leiðarvísir til að fá meira út úr lífinu og öllum samskiptum.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2008 | 11:54
Tígurinn og drekinn - Indland og Kína
Growling Tiger, Roaring Dragon fjallar um stöðu Indlands og Kína og stöðu þessara landa í alþjóðlegu samhengi. Indland og Kína eru lík lönd að því leiti að þau voru áður stórveldi og íbúafjöldinn er gríðarlegur en hvorugt landið hefur verið efnahagslegt stórveldi undanfarið. Þessir tímar eru þó að breytast því að allt stefnir í að þessi ríki verði mjög áhrifamikil í alþjóðlegu samhengi. Í bókinni eru farið yfir kosti og galla hvers lands fyrir sig og hverjir framtíðarmöguleikar þeirra eru.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 12:16
Fyrstu 90 dagarnir skipta öllu máli
Hvort sem um ræðir einhvern sem er að byrja með fyrirtæki, snúa við eldra fyrirtæki eða að stýra nýrri einingu segja fyrstu 90 dagarnir til um hvort nýi stjórnandinn slái í gegn eða mistakist. Bókin er aðgengilegur leiðarvísir að því hvernig á að takast á við nýtt hlutverk á árangursríkan hátt. First 90 Days sýnir hvernig eigi að læra að þekkja ný fyrirtæki, búa til öflug teymi, skapa samstöðu, ná markmiðum á skömmum tíma og leggja grunninn að árangri til lengri tíma. Að auki bendir Watkins á mistökum sem eru algeng meðal nýrra stjórnenda og hvernig fólk eigi að vernda sjálft sig, bæði persónulega og faglega á krefjandi tímum.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2008 | 11:43
Vænlegir fjárfestingakostir í Rússlandi en varúðar er þörf
Á síðustu 15 árum hefur Rússland verið að auka áhrif sín á alþjóðlegum mörkuðum og hefur landið laðað að erlenda fjárfesta. Out of the Red gefur góða innsýn í hvað er að gerast í Rússlandi af John Connor. Hann fjallar um markaði meðal annars fyrir hrávöru, orku og fasteignir og gefur bæði góðar lýsingar á einkenni hvers markaðar fyrir sig sem og sögu þeirra ásamt góðum ráðum um hvernig eigi að fjárfesta á þessum mörkuðum. Connor telur Rússland bjóða upp á marga vænlega fjárfestingarkosti en varar við óstöðugleika t.d. varðandi gjaldmiðil landsins sem og ótryggt ástand í stjórnmálum, sem mikilvægt er að hafa í huga áður en látið er til skarar skríða.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Skuld bókabúð
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar